English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Stafræn umbreyting er fyrst og fremst stafræn aðlögun á þeirri þjónustu sem borgin sinnir í dag.
Sérstakt átak hefur verið ræst til að hrinda þessari umbreytingu af stað sem nær til loka árs 2023. Það er risastórt verkefni sem á sér fáar hliðstæður hér á landi og nær til allra starfsstaða og starfsfólks sem brennur fyrir betri þjónustu með hjálp nútíma tækni.
Umbreyting á þjónustunni með bættum tæknilegum innviðum, beislun gagnastrauma, sjálfvirknivæðingu ferla, aukinni hagnýtingu gagna, greiningartólum og umhverfisvænni upplýsingatæknirekstri er liður í innleiðingu Græna plansins.
Stafræn umbreyting þjónustu felst í endurskoðun og skipulagningu út frá notendum þjónustunnar, að þeim sé mætt á þeirra forsendum. Hagnýting gagna skilar sér svo í auknu virði til borgarbúa í formi hnitmiðaðrar þjónustu, aukins gagnsæis og skilvirkari nýtingu á tíma þegar leita þarf eftir upplýsingum eða þjónustu innan borgarkerfisins.
Áframhaldandi þróun á upplýsingakerfum í takt við tækninýjungar og umhverfissjónarmið. Einfaldara skipulag kerfa, ferla og aukin samvirkni
Nýjar leiðir til að leysa áskoranir í starfsemi borgarinnar. Samstarf við frumkvöðla til að undirbúa Reykjavík fyrir komandi áskoranir.
Sjálfvirk stjórnsýsla einfaldar umsóknarferla og aðgengi að þjónustu borgarinnar. Aukin sjálfvirkni mun stuðla að minni sóun í kerfinu, hagræðingu og einföldun.
Hagnýting gagna er eitt af undirstöðuatriðum til að taka upplýstar ákvarðanir, hjálpar til við að bera kennsl á tækifæri til hagræðingar og verðmætasköpunar og skapa þar með grundvöll fyrir þróun og nýsköpun.