Spennandi sumarstarf í Búsetukjarna Grafarholti
Velferðarsvið óskar eftir að ráða starfsmann í búsetuþjónustu fyrir geðfatlað fólk í íbúðakjarna Þórðarsveigi 1-5. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst. Um er að ræða sumarafleysingu (frá apríl og út ágúst). Fullt starf í vaktavinnu.
Velferðarsvið óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu fyrir geðfatlað fólk í íbúðakjarna Þórðarsveigi 3. Um er að ræða sumarafleysingu (frá apríl og út ágúst). Möguleiki á hlutastarfi eftir sumarið!
Búsetukjarninn er með sólarhringsþjónustu og með það að markmiði að mæta þörfum íbúa á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt.
- Íbúum er veittur stuðningur, ráðgjöf og valdefling til að bæta lífsgæði sín.
- Unnið er eftir þjónandi leiðsögn og hugmyndafræði um sjálfstætt líf.
Verið er að leita eftir starfsmanni til að vinna í vaktavinnu, það eru dagvaktir, kvöldvaktir og í einhverjum tilfellum næturvaktir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs.
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
- Hvetja og styðja til sjálfstæðis og félagslegrar virkni.
- Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa.
- Stuðla að jákvæðum samskiptum við íbúa og annað samstarfsfólk.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir íbúa.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með geðfötluðum einstaklingum og/eða af umönnunarstörfum kostur.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Umhyggja og þolinmæði.
- Bílpróf kostur.
- Íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Ýmis hlunnindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg en þau má sjá hér.
Fríðindi í starfi
· Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
· Heilsustyrkur
· Samgöngustyrkur
· 36 stunda vinnuvika
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður:
Aðalheiður Kristín Jónsdóttir í tölvupósti: adalheidur.kristin.jonsdottir@reykjavik.is