Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í leikskólann Engjaborg
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.
Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi.
Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.
Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi.
Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum. Í Engjaborg vinnur sérkennari/þroskaþjálfi í stuðningsteymi.
Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun
Fríðindi í starfi
- Menningakort-bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrk
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir og skipuleggur sérkennslu á viðkomandi deild í samvinnu og samráði við sérkennslustjóra, yfirmann stuðningsteymis og deildarstjóra og sér til þess að starfsfólk deildarinnar taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu.
- Vinnur að skriflegri einstaklingsnámskrár fyrir barn sem nýtur sérkennslu á deildinni í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
- Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
- Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
- Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða Þroskaþjálfamenntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Gleði í starfi
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Krafist er hreins sakavottorðs í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Upplýsingar um starfið gefur Anna Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 411 3950 – 6243203 eða á netfangið engjaborg@reykjavik.is