Til baka á starfasíðu

Leikskólasérkennari/þroskaþjálfi í leikskólann Engjaborg

Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.

Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi.

Fullt starf Leikskólinn Engjaborg 112
Sækja um

Leikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.

Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi.

Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum. Í Engjaborg vinnur sérkennari/þroskaþjálfi í stuðningsteymi.

Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun

Fríðindi í starfi

  • Menningakort-bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • Heilsuræktarstyrk

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir og skipuleggur sérkennslu á viðkomandi deild í samvinnu og samráði við sérkennslustjóra, yfirmann stuðningsteymis og deildarstjóra og sér til þess að starfsfólk deildarinnar taki þátt í kennslu barna sem þurfa sérkennslu.
  • Vinnur að skriflegri einstaklingsnámskrár fyrir barn sem nýtur sérkennslu á deildinni í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Sér um að einstaklingsnámskrám sé framfylgt og þær endurmetnar í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • Veitir börnum sem þurfa á sérkennslu að halda sérstaka aðstoð og kennslu.
  • Gætir þess að barn sem nýtur sérkennslu einangrist ekki heldur sé hluti af hópnum og eigi hlutdeild í leikskólastarfinu.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara eða Þroskaþjálfamenntun
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Gleði í starfi
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Krafist er hreins sakavottorðs í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Upplýsingar um starfið gefur Anna Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 411 3950 – 6243203 eða á netfangið engjaborg@reykjavik.is

Heimasíða leikskólans

Sækja um