English translation
Hi! The English site is only a beta for now and still has many errors (especially in names and locations).
We are working hard to fix them and making more content available than ever before so expect constant updates.
Vilt þú fjölbreytni og sveigjanleika í starfi?
Hjá Afleysingastofu gefst einstaklingum tækifæri til þess að vinna í hlutastarfi eða fullu starfi á þeim tíma sem þeir óska eftir og prófa hina ýmsu starfsstaði innan borgarinnar. Fyrirkomulagið mun skapa meiri sveigjanleika fyrir þá einstaklinga sem vilja tímabundin, breytileg störf og/eða þurfa sveigjanlegan vinnutíma. Þetta gefur einstaklingum einnig tækifæri til þess að kynnast störfum Reykjavíkurborgar án þess að skuldbinda sig til lengri tíma.
Í dag leitar Afleysingastofa sérstaklega eftir hæfu fólki í metnaðarfull störf í leikskólum og frísund Reykjavíkurborgar. Í boði eru full störf, hlutastörf og afleysingastörf.
Störf í vaktavinnu eru einnig í boði á ýmsum starfsstöðum velferðarsviðs. Hægt er að vera í hlutastarfi á þessum stöðum samhliða starfi á leikskóla. Þú getur púslað saman þinni dagskrá!
Haft verður samband við þig ef þú kemur til greina og þér boðið að koma í viðtal.
Nánari upplýsingar um Afleysingastofu má nálgast hér eða hjá afleysingastofa@reykjavik.is.