Íþrótta- og útilífsráð
Á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur þann 7. janúar 2025, var samþykkt að stofna menningar- og íþróttaráð, sem fari með verkefni menningar- og ferðamálaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs að ferðamálum undanskildum sem færast undir borgarráð.
Íþrótta- og útilífsráð
Á fundi borgarstjórnar 2. júní 2026 var samþykkt að breyta heiti og verkefnum menningar- og íþróttaráðs.
Ráðið fer með verkefni samkvæmt gildandi samþykkt menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar að undanskildum menningarmálum sem færast yfir til nýstofnaðs menningarráðs. Forsætisnefnd er falið að vinna breytingar á samþykkt fyrir ráðið, í samráði við menningar- og íþróttasvið sem skal lögð fram til afgreiðslu á fyrsta fundi borgarstjórnar í september. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt menningar- og íþróttaráðs þar til ný samþykkt liggur fyrir.
Menningar- og íþróttaráð heldur að jafnaði tvo fundi í mánuði og eru þeir haldnir í Borgartúni 12-14.
Formaður ráðsins er Bjarni Guðjónsson.
Ritari ráðsins er Helga Björnsdóttir.