Byggingarréttur til sölu á lóðinni Krókhálsi 20
Auglýsing rennur út kl. 12:00, 21. desember, 2023
Auglýsingin er útrunnin!
Reykjavíkurborg auglýsir til sölu byggingarrétt á föstu verði undir atvinnuhúsnæði á lóðinni Krókhálsi 20.
Byggingarréttur til sölu
Á lóðinni Krókháls 20 er heimilt að byggja húsnæði undir atvinnustarfsemi á tveimur byggingarreitum, allt að 4312,5 m² á Krókhálsi A og 4900 m² á Krókhálsi B. Heimilt er að byggja 4-5 hæða húsnæði sem grafa sig inn í hæð. Hámark 1 bílastæði per 75-360 m² eftir starfsemi auk lágmarksfjölda hjólastæða, sjá nánar í deiliskipulagsgögnum.
Fast verð: 414.562.500 kr án gatnagerðargjalda.