Álfabakki 4

Miðvikudagur 6. apríl 2022

Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á Álfabakka 4 undir atvinnuhúsnæði. 

Staða auglýsingar - Útrunnin

Lóðin Álfabakki 4 er 6.976 fermetrar og á svæðinu er heimilt að gera ráð fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi.

Á lóðinni Álfabakki 4 er heimilt að byggja húsnæði undir atvinnustarfsemi allt að 3.000 fermetra ofan jarðar á 1-2 hæðum auk kjallara fyrir tæknirými skv. deiliskipulagsskilmálum sem samþykktir voru í B-deild Stjórnartíðinda 14. mars 2022.

Frekari upplýsingar og gögn um lóðina má sjá með því að skrá sig inn á útboðsvef Reykjavíkurborgar. Slóð hér að neðan.

Skilafrestur tilboða er fyrir kl. 12:00, 29. apríl 2022 á útboðsvef Reykjavíkurborgar.

Tilboð voru opnuð á auglýstum tíma: Skoða fundargerð