Atvinnustarfsemi í íbúðabyggð
Heimildir til atvinnustarfsemi innan íbúðarbyggðar efla mannlíf, fjölga atvinnutækifærum og hvetja til nýsköpunar.
Atvinnustarfsemi í íbúðabyggð er ekki ný af nálinni. Mörg fyrirtæki hafa orðið til í stofu, kjallara eða bílskúr hjá frumkvöðlum sem hafa fengið góða hugmynd og notað heimili sitt til að þróa sín fyrstu sprotafyrirtæki.
Skilmálar hverfisskipulagsins
Í skilmálum hverfisskipulags verður kveðið á um að ýmiss konar starfsemi verði heimil innan íbúðabyggðar í öllum hverfum borgarhlutans. Er það talið stuðla að hagkvæmari nýtingu innviða og sjálfbærari hverfum með fjölbreyttri þjónustu í göngufæri. Slík starfsemi getur líka eflt mannlíf, fjölgað gangandi og hjólandi vegfarendum, fjölgað atvinnutækifærum og hvatt til nýsköpunar.
Innan íbúðabyggðar er þó ekki heimiluð mengandi starfsemi sem krefst starfsleyfis frá Umhverfisstofnun eða heilbrigðisnefnd. Gildir það jafnt um starfsemi í atvinnuhúsnæði og íbúðarhúsnæði. Á skilgreindum verslunar- og þjónustusvæðum og miðsvæðum innan hverfanna yrðu rýmri heimildir til atvinnustarfsemi.