Vesturmiðstöð

Mánudaga–föstudaga
kl. 9:00–15:00

Austurstræti 8-10
Gengið inn frá Austurvelli
101 Reykjavík

Vesturmiðstöð séð frá Austurvelli.

Um Vesturmiðstöð

Vesturmiðstöð er ein fjögurra miðstöðva í Reykjavík, þar sem íbúar Reykjavíkurborgar geta nálgast fjölbreytta þjónustu, upplýsingar og ráðgjöf. Þar er meðal annars veittur stuðningur við börn, ungmenni, fjölskyldur, aldraða og fatlaða. Lögð er mikil áhersla á faglegt starf og farsælt samstarf við íbúa, félagasamtök og stofnanir þeirra hverfa sem tilheyra hverri miðstöð.    
   
Á miðstöðvunum sameinast velferðarþjónusta og skóla- og frístundaþjónusta í nærumhverfi barna og ungmenna. Þaðan er verkefninu Betri borg fyrir börn framfylgt en það miðar að því að bæta þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra. Á miðstöðinni eru allir lykilaðilar í þjónustu við börn og fjölskyldur á sama stað sem er grundvöllur þess að hægt sé að bregðast við áskorunum sem upp koma í lífi barna og ungmenna. 

Í miðstöðinni er veitt fjölbreytt velferðarþjónusta. Þar eru deildir fatlaðs fólks, virkni og ráðgjafar, barna og fjölskyldna, öldrunarmála og deild fullorðinna sem sinnir heimastuðningi og heimahjúkrun.  

Í miðstöðinni er skóla- og frístundaþjónusta sem og yfirstjórn leik- og grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva í hverfinu, auk almennrar ráðgjafar við stjórnendur og starfsfólk starfsstaða.     

Þú getur fengið nánari upplýsingar um þjónustuna og pantað tíma í ráðgjöf með því að hringja í síma 411 1600 eða senda okkur tölvupóst.

Ábyrgðarskipting á miðstöð:  

Framkvæmdastjóri fer með stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á velferðarmálum á miðstöð.   

Framkvæmdastjóri Vesturmiðstöðvar er Sigþrúður Erla Arnardóttir.

Fagstjórar og framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvar bera ábyrgð á skóla- og frístundaþjónustu í miðstöðinni. Þeir heyra undir skrifstofustjóra á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs í Borgartúni.  

Þjónusta sem veitt er á miðstöðinni og tengiliðir:   

Börn og fjölskyldur  

Deildarstjóri um málefni barna og fjölskyldna tekur þátt í mótun þjónustu í samræmi við velferðarstefnu og farsældarlög. Hann vinnur að innleiðingu verkefnisins Betri borg fyrir börn. 

Starfinu gegnir: Helgi Hjartarson 

Fatlað fólk  

Deildarstjóri um málefni fatlaðs fólks tekur þátt í mótun þjónustu í samræmi við velferðarstefnu. Deildarstjóri ber ábyrgð á sértækri ráðgjöf, stoð- og stuðningsþjónustu og búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk.  

Starfinu gegnir: Helgi Þór Gunnarsson

Virkni og ráðgjöf    

Deildarstjóri virkni og ráðgjafar tekur þátt í mótun þjónustu í samræmi við velferðarstefnu.  Hann veitir faglega forystu og leiðir umbætur í þjónustu sem tengist virkni og ráðgjöf.  

 Starfinu gegnir: Kolbrún Bragadóttir 

Fullorðnir 

Deildarstjóri fullorðinna (heimastuðnings og heimahjúkrunar) tekur þátt í mótun þjónustu í samræmi við velferðarstefnu. Veitir faglega forystu og leiðir umbætur í þjónustu sem tengist heimastuðningi og heimahjúkrun. 

Starfinu gegnir: Hróðný Lund

Heimilislaust fólk með miklar og flóknar þjónustuþarfir 

Deildarstjóri tekur þátt í mótun þjónustu í samræmi við velferðarstefnu og stefnu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir. Veitir faglega forystu og leiðir umbætur í þjónustu við hópinn.  

Starfinu gegnir: Soffía Hjördís Ólafsdóttir 

Frístundastarf  

Framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar er yfirmaður frístundastarfs í borgarhlutanum og stýrir stefnumótun í samstarfi við fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs.  

Starfinu gegnir: Guðrún Kaldal 

Deildarstjóri barnastarfs er yfirmaður forstöðumanna frístundaheimila í borgarhlutanum.  

Starfinu gegnir: Steinunn Th. Gretarsdóttir 

Deildarstjóri unglingastarfs er yfirmaður forstöðumanna félagsmiðstöðva í borgarhlutanum.  

Starfinu gegnir: Andrea Marel Þorsteinsdóttir 

Grunnskólar  

Fagstjóri grunnskóla í miðstöðinni er yfirmaður skólastjóra í borgarhlutanum og stýrir sérfræðingum sem veita stuðning inn í grunnskóla hverfisins, svo sem talmeinafræðingum, kennsluráðgjöfum, sérkennsluráðgjöfum, ráðgjafaþroskaþjálfum, hegðunarráðgjöfum og fleiri.  

Starfinu gegnir: Svandís Egilsdóttir

Leikskólar  

Fagstjóri leikskóla í borgarhlutanum er yfirmaður leikskólastjóra í borgarhlutanum og stýrir sérfræðingum sem veita stuðning inn í leikskóla hverfisins, svo sem talmeinafræðingum, kennsluráðgjöfum, sérkennsluráðgjöfum, ráðgjafaþroskaþjálfum, hegðunarráðgjöfum og fleiri. Fagstjórinn er jafnframt daggæslu í heimahúsum í Reykjavík.  

Starfinu gegnir: Gyða Guðmundsdóttir

Fjármál og mannauður  

Í miðstöðinni starfa sérfræðingar í fjármálum og mannauði sem styðja starfseiningar sviðanna í hverfinu.    

Fjármálaráðgjafi skólaþjónustu: Pálína Pálmadóttir 

Fjármálastjóri frístundaþjónustu: Gunnar Hrafn Arnarson 

Fjármálastjóri velferðarþjónustu: Hannes Steinar Guðmundsson

Mannauðsráðgjafar sinna mannauðsmálum og ráðgjöf, svo sem ráðningum, kjaramálum, réttindum og samskiptum. 

Mannauðsráðgjafi skóla- og frístundasviðs: Hrafnkell Tjörvi Stefánsson 

Mannauðsráðgjafi velferðarsviðs: Sigmar Þór Ármannsson 

Lýðheilsa og forvarnir

Unnið er að innleiðingu lýðheilsu- og forvarnastefnu Reykjavíkurborgar í hverfum borgarinnar. Þar starfar verkefnastjóri lýðheilsu, félagsauðs og forvarnarstarfs. 

Starfinu gegnir: Sigríður Arndís Jóhannsdóttir

Íþrótta- og frístundatengill og ráðgjafi í verkefninu Finndu kraftinn þinn: Jóna Helga Ástudóttir

Ráðgjafi í verkefninu „Velkomin í hverfið þitt“: Kerryn Anne Mcmurdo