16317 Vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027. EES samkeppnisútboð
Óskað er eftir tilboðum í Vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027, EES samkeppnisútboð nr. 16317
Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, f.h. Umhverfis-og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar (USK) óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða samkeppnisútboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð, að uppfylltum hæfiskröfum.
Útboðið tekur til eftirfarandi þjónustuflokka:
- Þjónustuflokkur 1a: Hjólastígar (fjólubláar leiðir í borgarvefsjá)
- Þjónustuflokkur 1: Stofnstígar (rauðar leiðir í borgarvefsjá)
- Þjónustuflokkur 2: Aðrir fjölfarnir stígar (bláar leiðir í borgarvefsjá)
- Þjónustuflokkur 3: Minna notaðir stígar (grænar leiðir í borgarvefsjá)
Nánari skýringar á vetrarþjónustunni í Reykjavík og þjónustuflokkana er hægt að nálgast á https://reykjavik.is/snjor.
Þjónustuflokkar stígana má sjá í borgarvefsjá á eftirfarandi vefslóð: borgarvefsja.is
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 12. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 14. júlí 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026.