16317 Vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027. EES samkeppnisútboð

Óskað er eftir tilboðum í Vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Reykjavík 2026-2027, EES samkeppnisútboð nr. 16317

Skrifstofa fjármálaþjónustu og ráðgjafar, f.h. Umhverfis-og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar (USK) óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða samkvæmt þessum útboðsgögnum. Um er að ræða samkeppnisútboð þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð, að uppfylltum hæfiskröfum.

Útboðið tekur til eftirfarandi þjónustuflokka: 

  • Þjónustuflokkur 1a: Hjólastígar (fjólubláar leiðir í borgarvefsjá) 
  • Þjónustuflokkur 1: Stofnstígar (rauðar leiðir í borgarvefsjá) 
  • Þjónustuflokkur 2: Aðrir fjölfarnir stígar (bláar leiðir í borgarvefsjá) 
  • Þjónustuflokkur 3: Minna notaðir stígar (grænar leiðir í borgarvefsjá) 

Nánari skýringar á vetrarþjónustunni í Reykjavík og þjónustuflokkana er hægt að nálgast á https://reykjavik.is/snjor

 Þjónustuflokkar stígana má sjá í borgarvefsjá á eftirfarandi vefslóð: borgarvefsja.is  

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 10:00 þann 12. júní 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00, þann 14. júlí 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2026