16302 Aðkomutorg og gatnahönnun á Reykjavegi
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Aðkomutorg og gatnahönnun á Reykjavegi, útboð nr. 16302.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felur í sér gerð aðkomutorgs og breytingar á gatnahönnun við Reykjaveg í beinum tengslum við skólaþorpið við Reykjaveg 19, ásamt tengdum verkþáttum.
Tilgangur framkvæmdarinnar er að tryggja örugga og fullnægjandi aðkomu starfsfólks og barna að skólaþorpinu við Reykjaveg 19.
Umfang verks
Helstu verkþættir eru eftirfarandi:
- Gerð aðkomutorgs
- Breytingar á gatnahönnun við Reykjaveg
- Gerð og aðlögun göngu- og akstursleiða
- Frágangur yfirborðs og uppsetning innviða
- Uppsetning lýsingar, fráveitu og götugagna
- Yfirborðsmerkingar og uppsetning skilta
Áfangaskipting framkvæmda
Framkvæmdum skal skipt í tvo áfanga:
- Áfangi 1: Framkvæmdir við Hofteig og Reykjaveg
- Áfangi 2: Framkvæmdir við núverandi innkeyrslu og bílastæði við Laugardalsvöllur
Verktaki skal haga framkvæmdum þannig að röskun á umferð og aðgengi verði í lágmarki.
Verklok : 3. september 2026.
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:00: þann 27. apríl 2026. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 12. maí 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda