16287 Hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög

F.h. Reykjavíkurborgar er óskað eftir umsóknum í

Hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög, hugmyndasamkeppni nr. 16287. 

Reykjavíkurborg hefur opnað fyrir hugmyndasamkeppni um kjarnasamfélög á völdum lóðum í borginni. Markmiðið er að styðja við uppbyggingu húsnæðissamvinnufélaga sem leið til að efla samvinnu og þátttöku íbúa, samnýtingu og sterk tengsl við borgarumhverfið.

Gögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is frá kl. 08:00 þann 20. mars 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“. Gögnin verða sömuleiðis aðgengileg á vefslóðinni:  https://reykjavik.is/kjarnasamfelog 

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Umsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 23:59 þann 4. maí 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni: https://reykjavik.is/kjarnasamfelog