16261 Rammasamningur um sérfræðiþjónustu Umhverfis og skipulagssviðs

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Rammasamningur um sérfræðiþjónustu Umhverfis og skipulagssviðs, EES útboð nr. 16261.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Umhverfis og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir tilboðum í ráðgjafaþjónustu. Um er að ræða sérfræðiráðgjöf á sviði byggingamála, samgöngumála, umhverfis og skipulagsmála eins og nánar er skilgreint í verklýsingu. Ráðgjöfin nær til og er takmörkuð við þá lýsingu sem er tilgreind er verklýsingu. Hún nær til m.a. hönnunar, bæði aðalhönnunar og verkhönnunar, byggingastjórnar, eftirlits, skipulagsáætlana, samgönguáætlana og umhverfismál og margt fleira. Um er að ræða útboð á rammasamning þar sem hvaða fyrirtæki sem er getur lagt fram tilboð. Rammasamningsútboð þetta er ekki loforð um viðskipti. Hámark samanlagðra viðskipta er kr. 5.000.000.000,- á grundvelli þessa samnings. Rammasamningurinn gildir í tvö ár frá töku tilboða eða hámark samanlagðra viðskipta er náð, hvort heldur verði á undan.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 12: þann 26. febrúar 2026.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 31. mars 2026.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda