16245 Leiksskólinn Maríuborg. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur
F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Leiksskólinn Maríuborg. Kennslustofur, hönnun, smíði og lóðafrágangur, útboð nr. 16245.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felur í sérhönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerð undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.
Kennslustofurnar eru hver um sig 14,9m x 6,4m eða um 96 m2 á einni hæð ásamt tengibyggingu, um 40m2, samtals er því nýja húsnæðið um 232 m2 að stærð. Kennslustofurnar skulu vera byggðar úr timbri. Hverja kennslustofu á að vera hægt að flytja í heilu lagi, setja niður á lóð leikskólans og tengja saman með tengibyggingu.
Verkið felur í sér eftirfarandi verkþætti:
•Hönnun og smíði tveggja kennslustofa og tengibyggingar viðleikskólann, þar með talið jarðvinnu og gerð undirstaða fyrir kennslustofurnar (alverktaka).
•Lóðarfrágang á tengdum svæðum samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.
•Lagningu stofnlagna fyrir kennslustofur ásamt tengingu við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun.
Áætluð lok framkvæmdatíma: 4. desember 2026.
Vettvangsskoðun: Leikskólinn Maríuborg, 13. janúar 2026, kl 15:30
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 16:30: þann 16. desember 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 5. febrúar 2026.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda