16227 Hlíðarendi. Yfirborðsfrágangur 2025

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Hlíðarendi. Yfirborðsfrágangur2025. Útboð nr. 16227.

Lauslegt  yfirlit yfir verkið : 
Verkið felst í að ganga frá yfirborði gangstétta og bílastæða meðfram suður- og vesturhlið H-reits á Hlíðarenda ásamt því að leggja götulýsinga og ganga frá fyrirliggjandi veitubúnaði veitufyrirtækja upp í yfirborð. Meðal verkliða eru jarðvinna fyrir fjarskiptalögnum götulýsingar, götulýsingarstrengjum, gróðurbeðum og ljósastaurum. 
Lagning og frágangur fjarskiptalagna götulýsingar, snjóbræðslulagna og  götuljósastrengja ásamt upphækkun niðurfalla, spindla og loka vatns- og hitaveitu og frágangur í yfirborði. Einnig útjöfnun fyllingar og frágangur undir malbik og hellulögn með púkkmulningi. Í verkinu skal einnig leggja sérsteyptan kantstein, helluleggja, ganga frá gróðurbeðum, götugögnum og reisa ljósastaura, setja yfirborðsmerkingar á götur og stíga ásamt því að setja upp umferðarmerki. 
Verkið skal vinna í samræmi við ákvæði gildandi reglugerða sem eiga við þessa framkvæmd og er verktaki að fullu ábyrgur fyrir því að þeim sé fylgt.

Helstu magntölur eru:

• Afrétting fyrir götu/göngustíga             450     m2

• Gröftur                                                     60     m3

• Gröftur fyrir veitur                                170     m3

• Fylling fyrir veitur                                 100     m3

• Götulýsing – jarðstrengir og jarðvír      600     m

• Götulýsing – ljósleiðarapípur                370     m

• Götulýsing – ljósastólpar                        12     stk.

• Púkkmulningur                                   1.050      m2

• Snjóbræðsla                                           480     m2

• Malbik                                                     90     m2

• Sérsteyptur kantsteinn                           140      m

• Hellulögn                                               690     m2

Verkinu er skipt í tvo áfanga. Áfangi 1 er eftir vesturhlið H-reits og áfangi 2 er eftir suðurhlið H-reits. Áætlað er að ljúka skuli áfanga 1 áður en hægt er að byrja á áfanga 2. 

• Áfanga 1 skal lokið fyrir 15.05.2026.

• Áfanga 2 skal lokið fyrir 15.06.2026.

Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:45, 3. nóvember 2025.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 18. nóvember 2025.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, sjá má niðurstöðu á vefslóðinni https://reykjavik.is/opnun-tilboda-2025