Tónmenntaskóli Reykjavíkur

Tónlistarskóli

Lindargata 51
101 Reykjavík

""

Um Tónmenntaskóla Reykjavíkur

Tónmenntaskóli Reykjavíkur er elsti starfandi tónlistarskólinn í Reykjavík, stofnaður haustið 1952 af Dr. Heinz Edelstein. Markmið skólans er að veita almenna tónlistarfræðslu og stuðla þannig að eflingu tónlistarlífs í Reykjavík. Tónmenntaskólinn er aðallega ætlaður nemendum á aldrinum 6 til 15 ára og er opinn fyrir börn úr öllum hverfum Reykjavíkur. Kennt er á margskonar hljóðfæri en einnig er rythmísk deild við skólann, Miðstöðin.

Skólastjóri er Anna Rún Atladóttir

 

 

Sækja um tónlistarnám

Þú getur sótt um tónlistarnám við Tónmenntaskóla Reykjavíkur á rafrænan hátt með því að fylla út umsókn í gegnum heimasíðu skólans.