No translated content text
Tónlistarskóli FÍH
Tónlistarskóli
Rauðagerði 27
108 Reykjavík
![""](/sites/default/files/styles/original_4k/public/myndir_stadir/fih.png.jpg?itok=1Np2GHeY)
Sækja um tónlistarnám
Þú getur sótt um tónlistarnám við Tónlistarskóla FÍH á rafrænan hátt með því að fylla út umsókn í gegnum heimasíðu skólans.
![](/sites/default/files/hanna_illustrations/tonlist.png)
Um Tónlistarskóla FÍH
Tónlistarskóli FÍH er staðsettur í Rauðagerði 27 í austurbæ Reykjavíkur.
Skólinn hefur um áratuga skeið verið leiðandi í rytmísku námi og námsaðferðir hafa speglað þá strauma og stefnur sem eru ráðandi hverju sinni á tónlistarsenunni. Skólinn samanstendur af framúrskarandi kennurum á öllum sviðum.
Hér er lifandi nám sem styður við áhuga nemenda og eykur færni þeirra og getu í að flytja og semja tónlist auk tækifæra að taka þátt í lifandi flutningi, innan skóla sem utan. Hér hafa farið í gegn margar af stórstjörnum íslensks tónlistarlífs.
Tónlistarnámið byggist á einkatímum, samspilum og bóklegum greinum. Að auki eru námskeið og hliðargreinar sem geta dýpkað skilning nemenda á tónlistarnáminu.
Skólinn býður nám á öll helstu hljóðfæri og reynir að verða við óskum nemenda ef óskað er eftir kennslu á minna hefðbundin hljóðfæri. Hér er kenndur rytmískur söngur en rytmískt og klassískt hljóðfæranám.
Opið fyrir umsóknir frá 24. mars til 5. maí.
Skólastjóri er Róbert Þórhallsson