No translated content text
Tónlistarskóli Árbæjar
Tónlistarskóli
Krókháls 5
110 Reykjavík
![Ljósmynd af húsnæði tónlistarskólans í Árbæ](/sites/default/files/styles/original_4k/public/2022-06/IMG_3289-5.jpg?itok=-pkaa4Ww)
Sækja um tónlistarnám
Þú getur sótt um tónlistarnám við Tónlistarskóla Árbæjar á rafrænan hátt með því að fylla út umsókn í gegnum heimasíðu skólans.
![](/sites/default/files/hanna_illustrations/tonlist.png)
Um Tónlistarskóla Árbæjar
Tónlistarskóli Árbæjar er hefur starfað óslitið frá árinu 1997 og eru nemendur 190 talsins sem koma víða að úr Árbæjarhverfi sem og öðrum hverfum borgarinnar. Kennslan er oftast á skólatíma eða strax eftir skólatíma og fer fram í flestum grunnskólum hverfisins svo sem Árbæjarskóla, Ingunnarskóla, Ártúnsskóla, Selásskóla og Norðlingaskóla.
Kennt er á eftirtalin hljóðfæri samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskólanna :
- píanó
- gítar
- söng
- bassa
- hljómborð
- þverflautu
- rafgítar
Allt hljóðfæra og söngnám fer fram í einkatímum og er það ýmist hálft nám í 30 mínútur í viku eða heilt nám tvisvar sinnum 25 mínútur í viku. Einnig er boðið upp á hópnám á píanó og gítar fyrir þá sem vilja kynnast hljóðfæranámi.
Við skólann er einnig starfandi forskóladeild og er hún ætluð 6-7 ára börnum. Einnig eru samspilshljómsveitir starfandi í skólanum.
Tónfræðigreinar fram að framhaldsstigi eru kenndar við skólann, flestar í fjarnámi. Má þar nefna tónfræði, tónheyrn, tónlistarsögu og tónsköpun. Allir kennarar skólans eru menntaðir tónlistarkennarar.
Skólastjóri er Stefán S. Stefánsson