Tillaga að starfsleyfi - Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, móttaka á úrgangi á millilager og til endurnýtingar í fyllingar á Esjumelum
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur unnið tillögu að tímabundnu starfsleyfi fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, skrifstofu framkvæmda og viðhalds á Esjumelum vegna nýrrar starfsemi. Um er að ræða móttöku á úrgangi (jarðefnum frá framkvæmdum á Höfðum ) á millilager og til endurnýtingar í fyllingar á Esjumelum. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi almenn starfsleyfisskilyrði heilbrigðisnefndar Reykjavíkur fyrir mengandi starfsemi og Starfsleyfisskilyrði fyrir Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, skrifstofu framkvæmda og viðhalds vegna móttöku á úrgangi á millilager og til endurnýtingar í fyllingar á Esjumelum. Lagt er til að gildistími verði til 31. maí 2026. Gögn vegna tillögunnar eru aðgengileg á vef Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur https://reykjavik.is/tillogur-ad-starfsleyfi-i-auglysingu á tímabilinu 20. janúar til 18. febrúar 2025. Á þeim tíma er öllum heimilt að senda inn athugasemdir og ábendingar við tillöguna. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendar Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið heilbrigdiseftirlit@reykjavik.is.