No translated content text
Þjónustumiðstöð borgarlandsins
Hverfastöð
Stórhöfði 9
110 Reykjavík
![""](/sites/default/files/styles/original_4k/public/myndir_stadir/19818-Hverfismi%C3%B0st%C3%B6%C3%B0in%20St%C3%B3rh%C3%B6f%C3%B0a_0.jpg?itok=a1SXYujS)
Um þjónustumiðstöðina
Þjónustumiðstöðin sinnir margvíslegum verkefnum í borgarlandinu, svo sem uppsetningu og viðhaldi umferðar- og gangbrautarljósa og umferðarmerkja, auk útleigu á lokunarbúnaði, umferðarmerkjum, fánum og fánaborgum. Grassláttur á 170 hekturum borgarlands er í höndum dráttarvéladeildar auk eftirlits með störfum verktaka, en á veturna sinnir sú deild snjómokstri og hálkuvörnum á göngu- og hjólastígum ásamt verktökum.
Eftirlit og umsjón með vetrarþjónustu og hreinsun gatna og gönguleiða er í höndum Þjónustumiðstöðvar, sem og umsjón og viðhald hitakerfa og eftirlit með framkvæmdum veitustofnana.
Þjónustumiðstöðin er opin mánudaga til fimmtudaga kl. 7:30–16:00 og föstudaga kl. 7:30–15:25.