Tréblásturshljóðfæri

Teiknuð mynd af saxofón í gulum lit.

Saxófónn, þverflauta, óbó, klarinett og fagott eru í flokki tréblásturshljóðfæra. 

Fagott

Fagottið er stórt hljóðfæri og þurfa nemendur að hafa náð vissum líkamlegum þroska til að ráða við það. Þetta á sérstaklega við um hendur sem þurfa að hafa náð lágmarksstærð. Til að hefja nám á fagott þarf nemandi yfirleitt að hafa náð 12–13 ára aldri. Mörg dæmi eru þó um að nemendur byrji eldri að læra á fagott með góðum árangri. Mælt er með að nemendur, sem hyggjast leika á fagott, læri á annað hljóðfæri áður til þess meðal annars að þjálfast í nótnalestri. Klarínetta og þverflauta eru algengust þótt mörg dæmi séu um að píanó- eða strengjanemendur skipti yfir á fagott með góðum ár- angri. Þar sem fagottið er dýrt hljóðfæri er algengast að tónlistarskólar eigi hljóðfæri fyrir þá sem eru að hefja nám. Fagott eru ýmist gerð úr tré eða plasti. Plasthljóðfærin eru ódýrari og því heppileg sem skólahljóðfæri. Öll fagott eru af sömu stærð en til eru fagott sem hönnuð erufyrir smáar hendur og því góð fyrir yngstu nemendurna. Fagottið er einkum notað í sinfóníuhljómsveitum, lúðrasveitum og alls konar kammertónlist.

Teiknuð mynd af fagott.

Klarinett

Klarínettan er notuð í margs konar tónlist en oftast í klassískri tónlist. Tónsviðið er mikið, tæplega fjórar áttundir, og styrkleikasviðið einnig mjög breitt. Tólf hljóðfæri tilheyra klarinettufjölskyldunni; As-sópranínóklarínetta, Es- sópranklarínetta, D-, C-, B-, A-klarínettur, A-bassetklarínetta, F-basset- horn, Es-altklarínetta, B-bassaklarínetta, Es-kontraaltklarínetta og B-kontrabassaklarínetta. Mikill meirihluti klarinettunemenda byrjar þó að læra á B-klarínettu. A-klarínettan er oft notuð í klassískri tónlist og er því nauðsynleg langt komnum nemendum og atvinnuhljóðfæraleikurum. Einnig er æskilegt að nemendur á efri stigum kynnist og sérhæfi sig e.t.v. á eitthvert eftirtalinna hljóðfæra: Es-sópran, bassaklarínettu og bassethorn. Flest börn geta hafið nám á B-klarínettu um 8–9 ára gömul, þó fer það eftir líkamsburðum og fingrastærð hvers og eins. Einnig eru fáanleg minni hljóðfæri eins og C-klarínettur sem gefa nemendum möguleika á að byrja um 7 ára aldur. Þeir sem byrja að læra á slík hljóðfæri geta síðan skipt yfir á B-klarínettu.

Teiknuð mynd af klarinett.

Óbó

Þegar borinn er saman fjöldi nemenda í óbóleik og nemendafjöldi á flest önnur blásturshljóðfæri kemur óneitanlega í ljós að óbóið hefur verið eftirbátur. Margar skýringar eru á þessu svo sem fæð góðra hljóðfæra, hátt verð á byrjendahljóðfærum og ef til vill ónóg kynning á þessu söngræna hljóðfæri. Algengast er að nám í óbóleik hefjist þegar nemendur eru 9 til 12 ára, þó að allmörg dæmi séu þess að nemendur hafi byrjað fyrr. Telji kennari að nemandi hafi ekki næga líkamsburði til að leika á óbó má brúa bilið með öðru hljóðfæri um stundarsakir. Nám á óbó er lítt frábrugðið námi á önnur hljóðfæri. Þó hlýtur að verða að geta um óbóblaðið, eða tóngjafann, sem með sanni má segja að gegni stóru hlutverki í framgangi námsins. Því er mikilvægt að nemandinn njóti góðrar aðstoðar og leiðsagnar í meðferð óbóblaðsins. Á efri stigum námsins er mikilvægt að nemandinn fái þjálfun í blaðasmíði ef þess er nokkur kostur. Systurhljóðfæri óbósins eru englahornið (Cor Anglais) og óbó d’amore. Bæði þessi hljóðfæri lifa sjálfstæðu lífi í tónbókmenntunum og er því mikilvægt að nemendur kynnist þeim af eigin raun ef mögulegt er.

Teiknuð mynd af óbó á hvítum grunni

Saxófónn

Nám á saxófón getur hafist þegar nemendur hafa líkamlega burði til að leika á og ferðast með hljóðfærið. Algengast er að saxófónnám hefjist þegar nemendur eru 10–12 ára gamlir. Oft þykir æskilegt að nemendur læri á annað minna og meðfærilegra tréblásturshljóðfæri fyrst og skipti svo þegar kennarinn telur henta. Þetta getur verið heppilegt en er þó alls ekki nauðsynlegt. Algengustu meðlimir saxófónfjölskyldunnar eru sópran-, alt-, tenór- og barítónsaxófónar. Megnið af klassískum tónbókmenntum saxófónsins er skrifað fyrir altsaxófón og læra flestir nemendur á það hljóðfæri, einkum þeir sem áhuga hafa á klassískri tónlist. Nemendur, sem hyggja á framhaldsnám í saxófónleik á klassísku sviði ættu að nota altsaxófón sem aðalhljóðfæri a.m.k. frá miðprófi. Val á saxófóni er ekki í jafn föstum skorðum þegar kemur að djass-, popp- og rokktónlist. Nemendur, sem leggja áherslu á slíka tónlist, geta haft hvaða saxófón sem er sem aðalhljóðfæri en alt- og tenórsaxófónar eru þó algengastir. Nám í djass-, popp- og rokktónlist fer fram samkvæmt námskrá í rytmískri tónlist. Öllum saxófónnemendum er hollt að kynnast fleiri en einum af meðlimum saxófónfjölskyldunnar einhvern tíma á námsferlinum.

Teiknuð mynd af saxófóni

Þverflauta

Algengast er að nemendur hefji þverflautunám 8–10 ára gamlir þó að dæmi séu um að nám hefjist fyrr. Ungum nemendum reynist oft erfitt að halda á þverflautu. Byrji nemendur mjög ungir er nauðsynlegt að nota þverflautu með bognu munnstykki. Mikilvægt er að nemandinn læri strax í upphafi að beita líkamanum á eðlilegan hátt og nái að halda flautunni í jafnvægi án áreynslu. Góð líkamsstaða stuðlar m.a. að opnum og óþvinguðum tóni. Í þverflautufjölskyldunni eru fjórar flautur: piccoloflauta, c-flauta (venjuleg flauta), altflauta í g og bassaflauta í c. Enn dýpri flautur eru til en eru afar sjaldgæfar. Í framhaldsnámi er æskilegt að nemandinn fái að kynnast piccoloflautunni enda er hún mikið notuð bæði í sinfóníuhljómsveitum og lúðrasveitum. Einnig getur verið gott að kynnast altflautunni en hún er einkum notuð í 20. aldar tónlist.

Teiknuð mynd af þverflautu.