Sérmerkt stæði

Fatlað fólk sem hefur skerta hreyfigetu og á erfitt með að komast til og frá almennu bílastæði getur átt rétt á sérmerktu bílastæði við hús sitt. Slík bílastæði eru sett upp við lögheimili einstaklinga og aðeins á landi í eigu Reykjavíkurborgar.
Sérmerkt stæði, sem stundum eru kölluð P-stæði, eru ekki það sama og P-merki, stæðiskort fyrir hreyfihamlað fólk, sem þú sækir um hjá sýslumönnum.
Á ég rétt á sérmerktu stæði?
Til að eiga rétt á sérmerktu stæði þarft þú að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Eiga lögheimili í Reykjavík.
- Búa við langvarandi hreyfihömlun og vera metinn í þörf fyrir sérmerkt stæði.
- Bílastæðið sem sótt er um skal vera á borgarlandi.
Ekki er heimilt að úthluta sérmerktu stæði ef bílastæði fylgir íbúð umsækjanda.
Hvernig sæki ég um P-stæði?
Þú fyllir út umsóknarform á Mínum síðum. Þar þarf einnig að skila inn eftirfarandi fylgiskjölum:
- Mynd af P-korti, útgefnu af sýslumanni.
- Læknisvottorð með upplýsingum um hreyfigetu.
Heimilt er að óska eftir eignaskiptasamningi ef upplýsingar um bílastæði sem fylgja eign liggja ekki fyrir.
Hvað gerist næst?
Umsóknin er tekin til vinnslu á miðstöð. Trúnaðarlæknir Reykjavíkurborgar fer yfir læknisvottorð og kallað er eftir nauðsynlegum upplýsingum frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Bílastæðasjóði og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í kjölfar þess er umsókn samþykkt eða synjað á fundi nefndar sem er skipuð fulltrúum velferðarsviðs, umhverfis- og skipulagssviði og trúnaðarlækni Reykjavíkurborgar.
Ef umsókn er synjað og þú telur sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir því að veita skuli þér undanþágu frá reglum getur þú sent inn beiðni um áfrýjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs.
Ef umsókn er samþykkt er gerður skriflegur samningur með ákvæði um tilkynningarskyldu um breyttar aðstæður t.d. ef viðkomandi flytur eða hefur ekki þörf fyrir stæðið lengur. Gildistími samnings er að hámarki 5 ár.
Hver setur upp skilti við sérmerkta stæðið?
Reykjavíkurborg lætur útbúa skilti við sérmerkta stæðið og setja það upp. Umsækjandi greiðir fyrir skiltið sjálft en ekki uppsetningu. Ef gera þarf breytingar við götur eða bílastæði á borgarlandi vegna uppsetningu skiltisins er það gert á kostnað Reykjavíkurborgar.
Hvar fæ ég frekari upplýsingar?
Frekari upplýsingar veitir starfsfólk þjónustuvers Reykjavíkurborgar í síma 411-1111.
- Hringdu í síma 411 11 11