Rafbílar

Reykjavíkurborg, Orkuveita Reykjavíkur og Veitur gerðu með sér samkomulag í apríl 2019 um stórfellda uppbyggingu innviða í borginni fyrir rafbílaeigendur.

Verkefnin

Verkefnið felur í sér að komið verður upp hleðslum fyrir rafbíla við 30 starfsstöðvar Reykjavíkurborgar, 20 hleðslur á ári næstu þrjú árin verða settar upp eftir ábendingar frá íbúum og þá munu Reykjavíkurborg og OR stofna sjóð sem úthlutað verður úr til húsfélaga fjölbýlishúsa sem hafa sett upp hleðslubúnað fyrir rafbíla á sínum lóðum.

Þrír þættir samkomulagsins

  • 30 hleðslur við starfsstöðvar Reykjavíkurborgar
  • 60 hleðslur á landi borgarinnar víðsvegar um borgina
  • 120 milljóna króna sjóður til að styrkja húsfélög fjölbýlishúsa til að koma upp hleðslubúnaði

Í fyrsta lagi verða byggðir upp innviðir fyrir hleðslubúnað rafbíla á 30 fyrirfram ákveðnum stöðum við starfsstöðvar Reykjavíkurborgar eða í næsta nágrenni þeirra. Þeir sjást á meðfylgjandi uppdrætti.

Á allt að 60 stöðum að auki verða lagðar lagnir að hleðslubúnaði og hann settur upp á borgarlandi með það að markmiði að þjóna íbúum sem ekki hafa bílastæði á eigin lóð. Búið er að óska eftir tillögum íbúa um staðsetningar. Reykjavíkurborg og Veitur velja endanlegar staðsetningar til samræmis við fjölda íbúa og önnur hagkvæmnisjónarmið. 

Loks munu OR og Reykjavíkurborg leggja árlega 20 milljónir króna hvor í þrjú ár í sjóð til að úthluta styrkjum til húsfélaga íbúðarhúsa sem koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla.

Staðan

Vinsamlegast athugið að öllum sjóðnum hefur verið úthlutað og enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um framhald eða aukið fé í sjóðinn.

Útboð á hleðslubúnaði

Hleðslustæðin munu verða kyrfilega merkt og eingöngu ætluð rafbílum. Uppsetning og rekstur sjálfs hleðslubúnaðarins, sem settur verður upp fyrir almenning, verða boðin út. Gert er ráð fyrir að hleðslan verði seld á þessum bílastæðum.

Reykjavíkurborg leggur til stæðin, Veitur leggja til heimtaugar og OR fé í styrktarsjóðinn. Gert er ráð fyrir að hámarksstyrkur til húsfélags nemi 1,5 milljónum króna og verði að hámarki 2/3 hlutar kostnaðar við að koma hleðslum upp við fjölbýlishúsið. Samkomulagið felur í sér að þriggja manna samstarfsnefnd samningsaðila heldur utan um verkefnið.

Uppbygging við starfstöðvar Reykjavíkurborgar

Uppdrátturinn sýnir hvar hleðslubúnaður verður settur upp við 30 starfsstöðvar borgarinnar. Íbúar munu hafa áhrif hvar allt að 60 að auki verða í borgarlandinu.