Notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar

Teikning af fimm manneskjum að spjalla.

Notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar starfarí umboði borgarráðs með þeim hætti sem nánar er kveðið á um í samþykkt þessari, samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar nr. 1020/2019 með síðari breytingum og eftir því sem lög mæla fyrir um. 

Notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar fer með hlutverk öldungaráðs Reykjavíkurborgar samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, 6. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 og eftir því sem lög mæla fyrir um, einnig með hlutverk samráðshóps um málefni fatlaðs fólks samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og eftir því sem mælt er fyrir um í lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og 8. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar

Notendaráð fatlaðs fólks og öldungaráð Reykjavíkurborgar skal sem; A. Öldungaráð Reykjavíkurborgar vera borgarstjórn, nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni sem snúa að mannréttindum, jafnrétti og samfélagsþátttöku borgarbúa sem eru 67 ára og eldri. Ennfremur til ráðgjafar við mótun allrar þjónustu borgarinnar sem snýr að borgarbúum sem eru 67 ára og eldri og almennt um málefni og hagsmuni hópsins. Ráðið komi að mótun málaflokka sem tengjast þjónustu við eldra fólk og gerir tillögur til fagráða Reykjavíkurborgar sem varða verksvið þess. Ráðið skal hafa frumkvæði að verkefnum sem stuðla að bættri þjónustu við borgarbúa sem eru 67 ára og eldri. 

B. Notendaráð fatlaðs fólks Reykjavíkurborgar vera borgarstjórn og nefndum og ráðum Reykjavíkurborgar til ráðgjafar um málefni fatlaðs fólks sem snúa að mannréttindum, jafnrétti og samfélagsþátttöku fatlaðs fólks. Ennfremur til ráðgjafar og við mótun allrar þjónustu borgarinnar sem snýr að fötluðu fólki og eftir atvikum öðrum hagsmunamálum fatlaðs fólks. Ráðið kemur að mótun stefnu í aðgengismálum og málaflokkum er tengjast þjónustu við fatlað fólk, tekur ákvarðanir og gerir tillögur til fagráða Reykjavíkurborgar sem varða verksvið hennar. Ráðið skal hafa frumkvæði að verkefnum sem stuðla að bættri þjónustu við fatlað fólk og bættu aðgengi fatlaðs fólks í samræmi við stefnu í aðgengismálum og fjárheimildir ráðsins hverju sinni. Ráðið skal stuðla að hvers konar upplýsingagjöf og samstarfi Reykjavíkurborgar við hagsmunasamtök, móta stefnu og gera tillögur til borgarráðs sem varða verksvið þess. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður. Velferðarsvið annast framkvæmd stefnu og verkefna ráðsins og samskipti við aðrar stofnanir borgarinnar.

Formaður notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs er Albert Guðmundsson.

Öldungaráð heldur að jafnaði einn fund í mánuði, annan miðvikudag í mánuði.

Starfsmaður notendaráðs fatlaðs fólks og öldungaráðs  Reykjavíkurborgar er  valgerdur.jonsdottir@reykjavik.is