Miðborgin í tölum
Samráðshópur um málefni miðborgar hefur staðið fyrir öflun tölulegra upplýsinga um þjónustu, verslun og rekstur í miðborginni. Hér á síðunni eru einnig aðrar tölulegar upplýsingar sem tengjast þróun miðborgarinnar
Verslun og þjónusta í miðborginni
Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur frá 2015 annast talningu á opnum stöðum í miðborginni að ósk Reykjavíkurborgar. Talið var 2015, 2019, 2020 og 2021, 2022, 2023 og 2024. Með árvissri talningu er betur hægt að fylgjast með þróun miðborgar.
Atvinnuhúsnæði í miðborginni (Kvosin+)
Miðborgin er að ganga í gegnum mikið uppbyggingartímabil. Árið 2021 var gerð úttekt á atvinnuhúsnæði innan svæðis sem kallað var Kvosin+ en hún var unnin af VSÓ ráðgjöf fyrir Reykjavíkurborg. Fyrirséð er áframhaldandi uppbygging.
- Skoða uppfærða kynningu Atvinnuhúsnæði í Kvosinni og nágrenni (Kvosin+) - uppfærsla fyrir Athafnaborgina (apríl 2022)