Menningar- og íþróttaráð

Teikning af fólki tala saman og vinna við skrifborð.

Á fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur þann 7. janúar 2025, var samþykkt að stofna menningar- og íþróttaráð, sem fari með verkefni menningar- og ferðamálaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs að ferðamálum undanskildum sem færast undir borgarráð.

Menningar- og íþróttaráð skal móta stefnu í menningar- og íþróttamálum, taka ákvarðanir og gera tillögur til borgarráðs hvað varðar verksvið þess. Jafnframt hefur ráðið eftirlit með rekstri Menningar- og íþróttasviðs og að samþykktum og stefnumörkun Reykjavíkurborgar á verksviði ráðsins sé fylgt. Þá fer ráðið með önnur þau verkefni sem borgarráð ákveður. Menningar- og íþróttasvið annast framkvæmd stefnu og verkefna ráðsins og samskipti við aðrar stofnanir borgarinnar. 

Menningar- og íþróttaráð heldur að jafnaði þrjá til fjóra fundi í mánuði og eru þeir haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur. 

Formaður ráðsins er Skúli Helgason.

Ritari ráðsins er Helga Björnsdóttir, skrifstofustjóri sviðsstjóra íþrótta- og tómstundasviðs.