Leiðb(einingar) - Hero text
Innheimtuferli
Hvað gerist þegar gjald er lagt á bílinn minn?
Þegar gjald er lagt á ökutæki er það lesið nær samstundis inn í bankakerfið og stofnast þar á viðkomandi eiganda/umráðamann og er þá tilbúið til greiðslu. Hægt er að greiða gjaldið í öllum bönkum og sparisjóðum hér á landi.
Þegar gjald er greitt innan þriggja virkra daga í heimabanka eða bankastofnun er veittur staðgreiðsluafsláttur. Sé gjald ógreitt 14 dögum eftir álagningu er send út greiðsluáminning. Sé gjaldið enn ógreitt 28 dögum eftir álagningu er aftur send greiðsluáminning. Komi ekki til greiðslu á álagningu innan 60 daga fer krafan í innheimtu hjá innheimtufyrirtæki og innheimtukostnaður leggst á kröfuna.
Skjaldarmerki Reykjavíkur
Saga merkisins
Með tilskipun frá árinu 1786 var sex verslunarstöðum á Íslandi veitt kaupstaðaréttindi og tekið fram að kaupstaðarbúar hefðu rétt til að biðja um skjaldarmerki og staðarinnsigli. Einn þessara staða var Reykjavík. Kaupstaðarréttindi þessi stóðu til 1836 en þá var gefin út tilskipun um að Reykjavík ein væri kaupstaður en aðrir staðir væru löggiltir verslunarstaðir. Frá árinu 1815 á Reykjavík innsigli sem sýnir standandi sjómann, bát og flatta fiska. Innsiglið var merki Reykjavíkur til ársins 1957 þegar núverandi merki var tekið í notkun.
Merki Reykjavíkurborgar sýnir hvítar öndvegissúlur Ingólfs Arnarsonar og öldur á bláum grunni og gotneskum skildi. Það var teiknað af Halldóri Péturssyni, teiknara, sem var ráðinn til að útfæra merkið á grundvelli samkeppni sem bæjarstjórn Reykjavíkur efndi til í mars 1951. Endanleg útfærsla merkisins var samþykkt á fundi 14. maí 1957 og hlaut samþykki bæjarstjórnar 6. júní það ár.
Skapandi borgir
Samtök skapandi borga UNESCO Creative Cities network samanstanda af borgum sem státa af menningarlegri arfleifð á einhverju af sjö listsviðum og leggja áherslu á að rækta og styðja við hana í samtímanum. Sviðin eru bókmenntir, tónlist, handverk og alþýðulist, kvikmyndir, hönnun, margmiðlunarlist og matargerðarlist. Borgir geta sótt um að verða aðilar að samtökunum, en þær borgir sem hljóta inngöngu þurfa einnig að sýna fram á metnað til framtíðar. Reykjavík var útnefnd Bókmenntaborg UNESCO árið 2011.
Samtök Skapandi borga UNESCO eru ört vaxandi og eru nýjar borgir útnefndar á tveggja ára fresti. Titillinn er varanlegur svo lengi sem borgirnar taka þátt í starfi samtakanna og sýna fram á öflugt menningarlíf á sínu sviði, en skila þarf framgangsskýrslu til UNESCO á fjögurra ára fresti.
Skapandi borgir UNESCO starfa samkvæmt leiðarljósi samtakanna.
Hero text / Haus með meiri texta
Í Hero text einingunni má vera lengri inngangstexti fyrir kaflann og lýsing á því efni sem hann hefur upp á að bjóða.
Hægt að velja hvort einingin er vinstra eða hægra megin á síðunni.
Ekki er hægt að nota teikningar eða ljósmyndir en öll bling eru í boði ef einingin er höfð hægra megin á síðunni. Litur á blingi fer eftir því theme sem valið er.
Það má setja hlekk í texta í þessa einingu. Hægt er að setja tengla innan vefs með því að leita að síðu eftir titli eða líma inn slóð út fyrir vefinn.