Kvenska, staðalmyndir og hugtök

Verkefni fyrir nemendur til að skoða kvenpersónur út frá ákveðnum feminískum hugtökum.

Um verkefnið

Jafnrétti, Staðalmyndir

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni

Gerð efnis: Verkefni

Markhópur: 13-16 ára

Viðfangsefni: Jafnrétti, Staðalmyndir, Hugtök

Nemendur velja sér tvær kvenpersónur – af samfélagsmiðlum, úr sjónvarpsþáttaröð, kvikmynd eða bók. Sagt er frá persónunni, mynd og heimild látin fylgja. Nemendur greina persónuna með tilliti til eftirfarandi hugtaka:

1. Hlutgerving
2. Karlaugað
3. Klámvæðing
4. Kvenfyrirlitning
5. Kynhlutverk
6. Normalísering (á hverju?)
7. Staðalmynd
8. Valdatengsl

Athugið að greiningin þarf að vera nákvæm og vel útskýrð svo við öll skiljum hvernig nemandinn er að hugsa greininguna. Það þarf að skilgreina hugtakið í greiningunni og beita því á viðkomandi viðfangsefni. Það er hægt að beita hugtaki þó svo að það eigi ekki við um myndina/týpuna – eins og ,,ekki er að finna klámvæðingu í týpunni því hún sýnir engar tilvísanir í klám, hvorki í hegðun né útliti heldur er…”