Karlmennska og kvenleiki – ímyndir og áhrif

Kennsluhugmynd um hvernig skoða má áhrif karlmennskuímynda og kvenleika á hegðun ungmenna í ákveðnum aðstæðum.

Um verkefnið

Kvenleiki - Karlmennska - Staðalímyndir - Félagsmótun

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni

Gerð efnis: Verkefni

Markhópur: 9-16 ára nemendur og starfsfólk

Viðfangsefni: Andleg og félagsleg vellíðan, Jafnrétti, Kynheilbrigði, Líkamsímynd/líkamsvirðing, Samskipti, Staðalmyndir

Karlmennska / kvenleiki

Áhrif karlmennskuímynda og kvenleika á hegðun ungmenna í ákveðnum aðstæðum s.s. á stefnumóti, í skólanum (í frímínútum), í íþróttum osfv.

  • Biðja nemendur að skrifa niður allt sem þeim dettur í hug sem tengist þessum hugtökum eða varpa upp á skjá t.d. á slido.com. Biðja nemendur að svara í símanum, skoða orðin, eru þau jákvæð eða neikvæð. Hvernig og í hvaða aðstæðum geta þau verið sérstaklega jákvæð eða sérstaklega neikvæð? Hvaða orð eru notuð yfir þá sem ekki uppfylla „skilyrði“ karlmennsku eða kvenleika (aumingjar, lessur, hommar, tíkur)?
  • Para nemendum saman í litla hópa, hver hópur fær dæmi um aðstæður (stefnumót, partý, frímínútur, í vinnuskólanum osfv.). Hvernig birtast kynjaðar hugmyndir þar? Hvernig eru óskráðu reglurnar, hver má gera hvað og hver ekki? Hvers er ætlast til af þeim? (Dæmi: hvernig ættu þau að líta út, hverjir stjórna umræðum, hver tekur fyrsta skrefið, hver er óvirkur)