No translated content text
Innlent samstarf
Til þess að Græna planið nái árangri þarf að efna til samstarfs við ýmsa innlenda aðila. Nauðsynlegt er að starfa með aðilum vinnumarkaðarins og ríkisvaldinu til að takast á við áskoranir framtíðarinnar.
Til að auka grænar samgöngur hefur verið ráðist í víðtækara samstarf en nokkru sinni fyrr við ríkið og nágrannasveitarfélögin um betri samgöngur, fjárfestingu í Borgarlínu og öðrum innviðum.
Innleiðing Græna plansins
Reykjavíkurborg á hlut í nokkrum leiðandi fyrirtækjum á Íslandi sem munu beita sér fyrir grænni umbreytingu og sjálfbærni í borginni.
Við innleiðingu á almennri eigendastefnu Reykjavíkurborgar og góðum stjórnarháttum skapast forsendur til að annast tiltekna starfsemi í þágu almennings.
Áherslur borgarinnar í samstarfi
Almenningssamgöngur
Uppbygging Borgarlínu og tengdra innviða.
Orkuskipti
Samstarf til að tryggja markviss og góð orkuskipti á næstu árum.
Hringrásarhagkerfi
Samstarf um uppbyggingu hringrásarhagkerfis, úrgangsforvarnir og endurnýtingu.
Græn fjármögnun
Samstarf um græn innkaup, sjálfbæra og félagslega fjármögnun og önnur græn fjármál.