Hvernig fæ ég útgefið götu- og torgsöluleyfi?

Afgreiðslutími 

Viðmið um afgreiðslutíma í tilfelli markaðssölu einstaklinga er 1 vika en afgreiðslutími getur verið allt að 2 mánuðir í tilfelli dag- og nætursölu, hverfasölu og sumarsölu.  

Umsóknum án tilskilinna gagna er vísað frá.

Gjaldskrá 

Leyfisgjald ákvarðast af gjaldskrá sem er endurskoðuð árlega.

Umsækjanda er send krafa um leigugjald í heimabanka.  

Skylt er að greiða leyfisgjald vegna markaðssölu einstaklinga fyrir undirritun samnings. Leyfisgjald fyrir dag- og nætursölu skal greiða innan 30 daga frá útgáfu leyfis. Berist greiðsla ekki innan þess tíma verður sölusvæði úthlutað að nýju.  

Það athugist að leyfisgjald fæst ekki endurgreitt eftir að leyfi hefur verið útgefið.  

Skilyrði leyfis

Helstu skilyrði götu- og torgsöluleyfis eru eftirfarandi: 

  • Tryggja skal öryggi og aðgengi vegfarenda og skal óhindruð gangstéttarbreidd skal vera minnst 1,5 m.  
  • Tryggja skal óheft aðgengi viðbragðsaðila.  
  • Sölusvæði skal haldið og skilað snyrtilegu. 
  • Úrgangur skal flokkaður og fargað á endurvinnslustöð. 
  • Ekki er heimilt að framselja eða framleigja götu- og torgsöluleyfi.  
  • Leyfishafa er óheimilt að stunda götu- og torgsölu annars staðar en leyfið kveður á um. Leyfisskírteini skal vera sýnilegt í söluaðstöðu.  
  • Fjarlægja skal söluaðstöðu af sölusvæði eftir lokun.  
  • Fjarlægð frá inngangi næsta rekstraraðila með sambærilega vöru skal vera að lágmarki 20 m í miðborgarkjarna en 50 m innan hverfasvæða. 
  • Gæta skal að því að starfsemi sé í sátt við nærumhverfið og reglum varðandi hávaða- og ljósmengun fylgt.  
  • Afla skal annarra tilskilinna leyfa, s.s. starfsleyfis heilbrigðiseftirlits vegna sölu matvæla.  
  • Leyfishafi skal annast snjómokstur og hálkuvarnir í nánasta umhverfi sölusvæðis.  
  • Leyfishafi skal skila borgarlandi í því ástandi sem hann tók við því. Verði skemmdir á borgarlandi verða þær lagfærðar af Reykjavíkurborg á kostnað leyfishafa. 

Sé skilyrðum leyfis ekki fylgt geta borgaryfirvöld að undangenginni viðvörun látið fjarlægja söluaðstöðu og hreinsað svæðið á kostnað leyfishafa og fellt leyfið úr gildi.  

Fyrirspurnir og ábendingar sendist á netfangið torgsala@reykjavik.is