Biðlisti í bílahúsum

Mjög mismunandi er eftir bílahúsum hve löng bið er eftir langtímastæði, fer eftir staðsetningu húsanna, fjölda þeirra stæða sem eru í boði og fjölda þeirra sem eru á biðlista. Því miður er ekki hægt að áætla fyrirfram hvenær langtímastæði losna og því erfitt að segja nákvæmlega til um hve biðin er löng. Hér að neðan er hægt að sjá mjög grófa áætlun sem gefur einhverja hugmynd.

Biðtími

Stjörnuport Nokkrir dagar - nokkrar vikur
Vitatorg Nokkrar vikur
Traðarkot Nokkrar vikur - nokkrir mánuðir
Bergstaðir uppi Nokkrir mánuðir - yfir ár
Kolaport Yfir ár
Ráðhús Yfir ár
Vesturgata Yfir ár - nokkur ár
Bergstaðir niðri Yfir ár - nokkur ár
Áætlun miðuð við janúar 2024. Vinsamlegast athugið að þetta er einungis til viðmiðunar, getur í einhverjum tilvikum verið margfalt lengri biðtími.