Biðlisti í bílahúsum

Mjög mismunandi er eftir bílahúsum hve löng bið er eftir langtímastæði, fer eftir staðsetningu húsanna, fjölda þeirra stæða sem eru í boði og fjölda þeirra sem eru á biðlista. Því miður er ekki hægt að áætla fyrirfram hvenær langtímastæði losna og því erfitt að segja nákvæmlega til um hve biðin er löng. Hér að neðan er hægt að sjá mjög grófa áætlun sem gefur einhverja hugmynd.

Biðtími

Stjörnuport Nokkrar vikur
Vitatorg Nokkrar vikur-Nokkrir mánuðir
Traðarkot Nokkrir mánuðir-yfir ár
Bergstaðir uppi Yfir ár
Kolaport Yfir ár
Ráðhús Nokkur ár
Vesturgata Nokkur ár
Bergstaðir niðri Nokkur ár
Áætlun miðuð við janúar 2025. Vinsamlegast athugið að þetta er einungis til viðmiðunar, getur í einhverjum tilvikum verið margfalt lengri biðtími.