Sænskukennsla

Sænskukennslan fer fram einu sinni  í viku í staðbundnu námi. Staðbundið nám er fyrir nemendur í 7. og 8. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning og tímasetningar breytast  frá ári til árs allt eftir búsetu og nemendafjölda. Netnám í sænsku er fyrir nemendur í 9. og 10. bekk um allt land.

Staðnám

Sænskukennslan fer fram einu sinni  í viku í staðbundnu námi. Staðbundið nám er fyrir nemendur í 7. og 8. bekk á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning og tímasetningar breytast  frá ári til árs allt eftir búsetu og nemendafjölda. Staðbundin kennsla fer fram eftir klukkan 16:00. Kennslutíminn er alltaf 80 mínútur og er reiknað með að nemendurnir þurfi jafnframt að sinna heimanámi.

Þar sem þetta er staðbundið nám er mætingarskylda. Ef nemandinn kemst ekki vegna veikinda þurfa foreldrar/ forráðamenn láta vita samdægurs.

Netnám

 Netnám í sænsku er fyrir nemendur í 9. og 10. bekk um allt land. Námið fer fram í gegnum kennslusvefinn Gskólar. Nemendur í níunda og tíunda bekk í sænsku þurfa að geta skilið bæði þungan staðreynda texta, nútímalegan skáldskap og texta frá fyrri öldum. Þeir þurfa að skrifa þó nokkrar ritgerðir á sænsku upp á 400 orð. Þeir þurfa að rökræða og útskýra hvað þeir hugsa, allt á sænsku. Þetta er ekki móðurmálskennsla.
Nemendur í netnámi þurfa að skila og leysa verkefni í hverri viku.

Námsmat

Allir nemendur þurfa að geta tjáð sig á blaði, tekið þátt í samræðum á sameiginlegum spjallsvæðum þar sem skrifað er á sænsku. Þeir þurfa að hlusta á viðtöl við fólk um efni sem stundum er erfitt og geta skrifað eigin hugleiðingar um það ásamt því að setja viðtalið í stærra  samhengi. Þeir þurfa líka að senda inn hljóðupptökur þar sem þeir eru sjálfir að tala á sænsku.

Nemendur þurfa að gera ráð fyrir að verja um 150 mínútum á viku í að leysa verkefni í sænsku. Námið í sænsku er skólaskylda og ef nemandinn ,,mætir ekki“ í netnámið sitt (sýnir virkni, leysir verkefni) er það talið vera skróp og heimaskólinn verður látinn vita. 

Námið miðar að því að nemendur læri að bera ábyrgð á eigin námi.

Hafa samband

Frekari upplýsingar veitir Ásdís Kalman, verkefnastjóri sænskukennslu.

 

Netfang: asdis.kalman@rvkskolar.is

Sími: 4117991