Hvílustæði

Teikning af fólki og hundi úti í náttúrunni.

Hvílustæði eru bílastæði sem breytt er tímabundið í dvalarsvæði fyrir íbúa og gesti borgarinnar. Megináhersla með hvílustæðunum er að skapa skemmtileg svæði fyrir fólk í sólríkum göturýmum borgarinnar, svæðum sem geta hvatt til dvalar, samskipta og leiks.

Búum til líflegt borgarumhverfi

Hvílustæðin eru tilraun sem getur leitt til þess að göturýmið taki breytingum seinna meir og verði gert að varanlegu dvalarsvæði. Á sama tíma er reynt að vekja íbúa og aðra hagsmunaaðila til umhugsunar um sitt nánasta umhverfi og hvetja þá til þátttöku í mótun svæðanna.

 

Fjölbreytni og áhugaverð hönnun eru grundvallaratriði í gerð hvílustæða og styður áhugaverð hönnun við markmið hvílustæða um að skapa áhugavert og líflegt borgarumhverfi.

Teikning af nemendum og foreldrum á leið í vetrarfrí

Leiðbeiningar um hvílustæði

Hvílustæði eru gjarnan tengd rekstri við götuna og eru að öllu jöfnu gerð að frumkvæði rekstraraðila. Leiðbeiningar um hvílustæði voru samþykktar í umhverfis- og skipulagsráði 26. apríl 2023.

Leiðbeiningarnar voru gerðar til að einfalda og skýra út ferlið við gerð og uppsetningu hvílustæða í borgarlandi. Þær tryggja bætt öryggi og fela í sér bætta ásýnd og kalla á meira mannlíf í borgarrýminu. Hönnunarleiðbeiningarnar fjalla einnig um aðgengi, afmörkun, efnisval, götugögn og nýtingu.

Umsækjendur um hvílustæði bera allan kostnað hvað varðar hönnun, uppsetningu og leyfi fyrir stæðinu.

 

Ert þú með hugmynd eða viltu fá frekari upplýsingar?

Hafðu samband með því að senda tölvupóst á gongugotur@reykjavik.is