Gjaldskrá fyrir hundahald
Dýraþjónusta Reykjavíkur innheimtir gjöld vegna hundahalds samkvæmt gjaldskrá þessari.
Gjaldskrá fyrir hundahald
Þjónusta | Verð krónur |
---|---|
Skráningargjald | 0 krónur |
Árlegt hundagjald | 15.700 krónur |
Handsömunargjald | 34.000 krónur |
Hefur þú sótt um námskeið um hundahald?
Heimilt er að veita allt að 30% afslátt af árlegu eftirlitsgjaldi hafi viðkomandi umráðamaður hunds sótt námskeið um hundahald sem viðurkennt er af Dýraþjónustu Reykjavíkur. Slíkur afsláttur tekur þá gildi ári eftir að hundur er skráður og gögnum um námið er skilað.
Skólar
Listi yfir skóla sem eru með viðurkennd grunnnámskeið í hundauppeldi:
- Dýrheimar, Víkurhvarfi 5, Kópavogi
- Gallerý Voff, Reykjahlíð, Mosfellsbæ
- Hundaakademían, Skemmuvegi 40, Kópavogi
- Hundafjör, Dranghólum, Selfossi
- Hundalíf, Smiðjuvegi 9, Kópavogi
- Hundaræktarfélag Íslands, Síðumúla 15, Reykjavík
- Reykjavík Hundaskóli Sóleyjar, Reiðhöllinni í Víðidal
- Hundaskóli Heiðrúnar Klöru, Skemmuvegi 40, Kópavogi
- Hundaskóli Heimsenda hunda, C tröð, Víðidal, Reykjavík
- Hundaskólinn hjá Sif Traustadóttur dýralækni, Grensásvegi 12a, Reykjavík
- Hundaskólinn Okkar, Lambhaga 14, Álftanesi
- Hundastefnan, Blikastaðavegi 2, Reykjavík
- Hundaþjálfun Kristínar Sigmars, Stórhöfða 17, Reykjavík