Hönnunarsamkeppni um nýja safnavefi

Reykjavíkurborg efnir til hönnunarsamkeppni um vefþróun, vefhönnun og forritun á nýjum vefsvæðum Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur. Samkeppnin er hönnunarsamkeppni með forvali og er öllum frjáls þátttaka í forvalinu.

Umsóknum í forval skal skilað fyrir kl. 12:00 á hádegi 18. ágúst 2022.

Nýir vefir fyrir Listasafn Reykjavíkur og Borgarsögusafn Reykjavíkur

Auglýst er eftir þátttöku í forvali fyrir hönnunarsamkeppni um nýja safnavefi. Markmið samkeppninnar er að fá bæði reynd og reynsluminni fyrirtæki til að koma með áhugaverðar tillögur að hönnun framtíðarvefsvæða safnanna. Þrjú fyrirtæki verða valin í forvalinu og þeim boðið að taka þátt í samkeppninni. Þau fá hvert um sig 350.000 kr. auk virðisaukaskatts til að vinna tillögur fyrir samkeppnina. Heildarfjárframlag til verkefnisins er að hámarki 28.500.000 kr. auk virðisaukaskatts.

Umsóknarferli

Þrep 1

Forval, umsókn með umbeðnum gögnum fyrir þrep 1 skilað inn. 

 

Þrep 2

Þrjú teymi valin áfram og boðið að taka þátt í samkeppninni að uppfylltum skilyrðum fyrir þrep 2. 

Þrep 3

Vinningstillaga er valin og gengið verður til samninga að uppfylltum skilyrðum fyrir þrep 3. 

Ófrávíkjanleg skilyrði þess að umsókn sé veitt viðtaka og hún dæmd, er að henni sé skilað á réttum tíma.

Tímalína fyrir hönnunarsamkeppni

  • 2. ágúst - Forval og samkeppni auglýst
  • 12. ágúst - Fyrirspurnarfrestur bjóðanda fyrir kl. 12 á hádegi
  • 15. ágúst - Svarfrestur kaupanda
  • 18. ágúst - Skilafrestur umsókna fyrir kl. 12 á hádegi
  • 23. ágúst - Niðurstaða forvals
  • 26. ágúst - Samkeppnislýsing gefin út til keppenda
  • 29. ágúst - Fyrirspurnarfrestur bjóðanda fyrir kl. 12 á hádegi
  • 2. september - Svarfrestur kaupanda
  • 21. september - Keppendur skila inn tillögum fyrir kl. 12 á hádegi
  • 30. september - Niðurstaða dómnefndar liggur fyrir

Markmið og þarfir

Sameiginleg markmið nýrra vefsvæða safnanna eru eftirfarandi:  

  • Einfaldir og notendavænir vefir sem skila ímynd safnanna til notandans  

  • Vefir sem kynna söfnin og starfsemi þeirra og miðla upplýsingum 

  • Vefir sem bæta aðgengi allra að söfnunum  

  • Vefir sem auka samkeppnishæfni safnanna á alþjóðlegum markaði 

  • Vefumsjónarkerfi sem auðveldar starfsfólki viðhald og umsýslu vefsvæðisins  

  • Vefverslunarkerfi til að geta sinnt stafrænni þjónustu; s.s. miðasölu á netinu og bókun á heimsóknum  

Forvalsnefnd og dómnefnd

Útskýringar á skammstöfunum: ÞON er Þjónustu- og nýsköpunarsvið en MOF stendur fyrir Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar.

Forvalsnefnd 

  • Fulltrúi ÞON – Ólafur Sólimann Helgason 
  • Fulltrúi MOF – Lára Aðalsteinsdóttir 
  • Stafrænn vöruhönnuður – Auðbergur Daníel Gíslason  

Dómnefnd 

  • Fulltrúi Listasafns Reykjavíkur – Ólöf Kristín Sigurðardóttir 
  • Fulltrúi Borgarsögusafns Reykjavíkur – Guðbrandur Benediktsson 
  • Fulltrúi ÞON – Gísli Guðmundsson 
  • Viðmótshönnuður – Valgerður Pétursdóttir 
  • Grafískur hönnuður – Ármann Agnarsson 

Ef upp koma vafaatriði við mat á tillögum getur dómnefnd leitað ráðgjafar sérfræðinga Reykjavíkurborgar. 

Ritari: Ingunn Eyþórsdóttir, verkefnastjóri á ÞON   

Hönnunsamkeppnin er á vegum Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg býður samkeppnina út á Evrópska efnahagssvæðinu.

Útboð

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að taka þátt í forvalinu skulu sækja um þátttöku á útboðsvef Reykjavíkurborgar.

Öll samskipti skulu fara fram með skriflegum hætti í gegnum flipann „Samskipti/Correspondence“ fyrir forvalið á útboðsvef Reykjavíkurborgar.

Útboðsgögn

Allar nánari upplýsingar um forvalið er að finna í forvalslýsingu. Í þarfagreiningu er farið yfir helstu þarfir fyrir nýja vefi Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur.