Hinsegin verkefni

Nokkur fjölbreytt hinsegin verkefni, til að mynda um birtingarmyndir hinsegin fólks í teiknimyndum og íþróttum. Hægt er að nýta þetta verkefni í hinsegin fræðslu, félagsfræði, kynfræðslu, jafnréttisfræðslu og fl.

Um verkefnið

Jafnrétti, Hinsegin

Tenging við menntastefnu: Félagsfærni

Gerð efnis: Verkefni

Markhópur: 13-16 ára

Viðfangsefni: Jafnrétti, Mannréttindi, Sjálfsmynd, Hinsegin

Verkefni um hinseginleikann

Nemendur velja sér eitt málefni og fjalla um – stuðst er við minnst tvær heimildir og þeirra getið í lok verkefnis:

  1. Birtingarmyndir hinsegin fólk í teiknimyndum. Hér er gagnlegt að vera með skýran fókus eins og til dæmis Disney myndir.
    Útvarpsþáttur um illmenni í Disney kvikmyndum „Einhver dragdrottninga fantasía“.
  2. Birtingarmyndir hinsegin fólks í íþróttum, hér er áhugavert að fjalla um Caster Semenya
  3. Löggjöf um INTERSEX á Íslandi og umfjöllun um intersex,  t.d. hægt að skoða  heimasíðu Amnesty .
  4. Staða hinsegin baráttunnar í Póllandi, 
    Meira um stöðu hinsegin fólks í Póllandi
  5. Fjallið um síðuna Ö til A , takið fyrir grunninn og vísið í það sem fellur undir regnhlífina.
  6. Fjallið um TRANS-réttindi og stöðu trans-umræðuna. 
    Bók um réttindi transgender fólks á Íslandi
  7. Takið fyrir hvernig samkynhneigð birtist í meginstraums menningu (e. mainstream media), hér gætu þið fjallað um Æði, eða Lil Nas X eða hvernig „hómófóbía“ birtist í rapp eða öðru.

Hvernig þarf verkefnið að vera?

  1. Fjallið í fyrstu almennt um efnið – hér skilgreinið þið hugtök og annað
  2. Í framhaldi fjallið þið um efnið sjálft, byrjið á því almenna og heimildunum
  3. Síðan er það hvernig þið sjáið þetta
  4. Í lokin dragi þið saman
  5. Notið myndir og annað skemmtilegt til þess að gefa efninu líf.