Skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjórnar

Skrifstofa borgarstjórnar fer með alla umsýslu fyrir borgarstjórn, borgarráð, forsætisnefnd og ýmsar aðrar nefndir. Í því felst móttaka og meðferð gagna, undirbúningur funda, svo sem gerð og útsending dagskrár, framkvæmd funda, þar með talið ritun fundargerða og ráðgjöf til formanns og annarra fundarmanna.