Hænsnahald

Samkvæmt samþykkt um hænsnahald í Reykjavík, utan skipulagðra landbúnaðarsvæða nr. 815/2014 má halda hænur en sækja þarf um leyfi heilbrigðisnefndar til hænsnahalds í Reykjavík sbr. 2. gr. samþykktar nr. 426/2003 um takmörkun búfjárhalds og bann við lausagöngu búfjár í Reykjavík. 

Samþykki nágranna

Með umsókn skal fylgja skriflegt samþykki nágranna sem eiga aðliggjandi lóðir. Ef um fjöleignarhús er að ræða skal að auki liggja fyrir samþykki sameigenda, sbr. lög nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Sé umsækjandi leigjandi skal fylgja samþykki leigusala.

Staðsetning hænsnakofa

Með umsókn skal fylgja afstöðumynd sem sýnir staðsetningu hænsnakofa og gerðis á lóð.

Leyfi

Leyfi eru gefin út til 4 ára í senn.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur útbúið leiðbeiningar um förgun úrgangs og annað sem tengist hænsnahaldi í Reykjavík.

Fyrirspurnir og ábendingar

Vinsamlega hafðu samband við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hafirðu ábendingu eða fyrirspurn eða hringja í þjónustuver Reykjavíkurborgar síma 411 1111.