Greiðsluskilmálar fyrir sumarstarf frístundamiðstöðva og sértækra félagsmiðstöðva

Systkinaafsláttur

Sendur er einn greiðsluseðill fyrir hvern mánuð í sumarstarfi frístundaheimila. Veittur er 20% systkinaafsláttur án umsóknar vegna systkina sem eru með sama lögheimili og lögheimilistengsl í þjóðskrá og eru í sumarstarfi frístundaheimila á vegum skóla- og frístundasviðs í sama mánuði. Ekki er veittur systkinaafsláttur af gjaldi í sumarsmiðjur félagsmiðstöðva fyrir 10-12 ára.

Afskráning

Vinsamlega athugið að ef hætta á við þátttöku í námskeiði/smiðju þarf að tilkynna það skriflega til viðkomandi frístundamiðstöðvar að minnsta kosti viku áður en námskeið/smiðja hefst (t.d. fyrir miðnætti á sunnudegi þegar námskeið/smiðja hefst á mánudegi viku seinna). Ella verður gjaldið innheimt að fullu.

Gjalddagi

Gjald fyrir sumarstarf frístundaheimila er innheimt eftir á. 

Innheimt er fyrir 10-12 ára smiðjur félagsmiðstöðva með einni greiðslu í lok tímabilsins, um miðjan júlí.

Gjalddagi er fyrsti dagur næsta mánaðar. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Hafi gjaldið ekki verið greitt á eindaga leggjast á dráttarvextir og vanskilakostnaður. Hafi ekki verið greitt innan 50 daga frá gjalddaga er krafan send í milliinnheimtu hjá Momentum. Ekki er hægt að nota frístundakort til að niðurgreiða sumarstarf.