Gjaldfrjáls Strætó fyrir börn á grunnskólaaldri
Börn fædd 2010–2014 með lögheimili í Reykjavík geta fengið tveggja mánaða gjaldfrjálsa Strætó-áskrift. Hægt er að sækja um áskriftina til og með 30. júní 2026.
Markmiðið er að auðvelda börnum og ungmennum að ferðast um borgina, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli vegna skóla, íþrótta og frístunda.
Hvernig virkar þetta?
Sótt er um á Mínum síðum Reykjavíkur. Áskriftin verður svo aðgengileg í Klappinu (appi Strætó), á Klapp korti eða lyklakippu.
Áður en sótt er um þarf að stofna Klapp aðgang fyrir barnið á því símanúmeri sem á að tengjast áskriftinni. Notaðu símanúmer barnsins ef það er með snjallsíma.
Til að geta notað Klapp appið þarf barnið að hafa aðgang að nettengdum snjallsíma. Ef síminn er með brotnum skjá eða er ekki nettengdur getur barnið ekki notað appið til að skanna inn farmiðann.
Klapp kort og lyklakippur
Ef barnið er ekki með snjallsíma er hægt að setja áskriftina á Klapp kort eða lyklakippu. Ef barnið á nú þegar Klapp kort eða lyklakippu skráir forsjáraðili númer kortsins í umsóknarformið á Mínum síðum Reykjavíkur.
Hvað ef barnið mitt á ekki kort/lyklakippu?
Ef barnið á ekki kort eða lyklakippu er nauðsynlegt að sækja nýtt kort/lyklakippu í þjónustuver borgarinnar í Borgartúni 12, áður en sótt er um á Mínum síðum Reykjavíkur.
Hvað ef barnið mitt er nú þegar með áskrift?
Ef barnið er nú þegar með virka áskrift (mánaðarkort eða árskort) þá bætast tveir aukamánuðir við eftir að þeirri áskrift lýkur.
Ertu með einhverjar spurningar?
Nánari upplýsingar um Klappið, kort, lyklakippur og notkun appsins má finna á heimasíðu Klappsins.
Þjónustuver borgarinnar svarar fyrirspurnum um þjónustu borgarinnar í síma 411 1111, á netspjalli og í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is.