Boðið upp á frítt kort í strætó í maí og júní fyrir reykvísk grunnskólabörn

Róbert Reynisson
Fólk að labba inn í strætó fyrir utan Mjóddina

Boðið verður upp á tímabilskort í Klapp-appi Strætó í maí og júní 2026 fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri, á meðan unnið er að varanlegri útfærslu á fríum strætóferðum fyrir þennan hóp. Sækja þarf sérstaklega um kortið og munu skólarnir sjá um umsýslu með kaupum.

Borgarstjórn samþykkti 3. febrúar 2026 að fella niður gjaldtöku í strætó vegna reykvískra barna á grunnskólaaldri frá 1. maí 2026. Á meðan unnið er að fullri innleiðingu verður farið í brúarlausn þar sem börn fá tímabilskort í maí og júní. Börn undir 12 ára aldri fá þegar frítt í strætó en þau sem eldri eru og vilja nýta þessa lausn skrá sig á skrifstofu síns skóla. Niðurgreiðsla vegna barna í skóla á Kjalarnesi mun tryggja jafnræði í aðgengi að lausninni óháð búsetu innan borgarmarka.

Þann fyrsta júlí taka Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. við rekstri af Strætó bs. Samhliða brúarlausninni verða því hafnar viðræður við nýja félagið um varanlega útfærslu, sem starfshópur leggur til að verði NFC-uppfærsla á Klapp-appinu. Þá verður skoðuð tenging við stafræna borgarkortið.

Tillaga borgarstjóra.