Hægt að sækja um tveggja mánaða strætókort fyrir börn á grunnskólaaldri
Reykjavíkurborg býður börnum fæddum á árunum 2010–2014 með lögheimili í Reykjavík tveggja mánaða gjaldfrjálsa Strætó-áskrift og verður hægt að sækja um kortin frá og með 18. maí.
Forsjáraðilar barna sem eru fædd 2010-2014, með lögheimili í Reykjavík munu frá og með mánudeginum 18. maí geta sótt um fría tveggja mánaða Strætó-áskrift á Mínum síðum Reykjavíkurborgar. Um er að ræða tímabundið prufuverkefni með möguleika á að lausnin verði til frambúðar. Yngri börn fá þegar frítt í strætó.
Umsóknarformið fyrir fría tveggja mánaða Strætó-áskrift verður opið frá 18. maí til og með 30. júní 2026. Börn sem þegar eru með virka Strætó-áskrift geta einnig fengið tvo auka mánuði bætta við núverandi áskrift, en sækja þarf sérstaklega um það í sama umsóknarformi á Mínum síðum Reykjavíkurborgar.
Á mánudagsmorgun 18. maí munu forsjáraðilar reykvískra barna á þessum aldri fá hnipp frá island.is með frekari leiðbeiningum, ásamt tengli á umsóknarformið.
Verkefnið er liður í aðgerðum Reykjavíkurborgar til að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli foreldra vegna skóla-, íþrótta- og frístundastarfs.
Nánari upplýsingar verða birtar á vef Reykjavíkurborgar á mánudaginn.