Endurskoðunarnefnd - Fundur nr. 182

Endurskoðunarnefnd

ENDURSKOÐUNARNEFND

Ár 2020, þriðjudaginn 19. mars var haldinn 182. fundur endurskoðunarnefndar Reykjavíkurborgar. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst klukkan 8:30. Viðstaddir voru Lárus Finnbogason, Einar S Hálfdánarson og Sigrún Guðmundsdóttir. Fundarritari var Hallur Símonarson.

Þetta gerðist:

1.    Fram fer kynning á drögum að ársreikningi Faxaflóahafna sf. ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu sem lögð verður fram samhliða framlagningu ársreiknings fyrir hafnarstjórn. IE19110008

Sturla Jónsson, Stefán Þór Ingason og Theódór S Sigurbergsson frá Grant Thornton endurskoðun ehf. taka sæti á fundinum undir þessum lið. Gísli Gíslason og Skúli Þór Helgason frá Faxaflóahöfnum tóku þátt í fundinum um fjarfundabúnað.

Samþykkt að fela Lárusi Finnbogasyni að gera umsögn endurskoðunarnefndar til stjórnar Faxaflóahafna sf.

Fundi slitið kl. 9:06

Lárus Finnbogason

Sigrún Guðmundsdóttir    Einar S Hálfdánarson

 

PDF útgáfa fundargerðar
Endurskoðunarnefnd 19.03.2020 - prentvæn útgáfa