Yfirlýsing vegna fjölmiðlaumfjöllunar

Yfirlýsing vegna fjölmiðlaumfjöllunar

Skóli og frístund

""

Vegna fjölmiðlaumfjöllunar um rannsókn er varðar tilkynningu undir nafnleynd sem féll undir barnaverndarlög nr. 80/2002.

Hinn 16. janúar 2013 barst skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar tilkynning sem féll undir 35. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og sneri að starfandi grunnskólakennara í borginni. Tilkynnandi óskaði nafnleyndar. Í samvinnu við skólastjóra og í samráði við embætti borgarlögmanns og Barnavernd Reykjavíkur var brugðist við samkvæmt verklagsreglum sviðsins.

Hinn 24. s.m. tilkynnti skóla- og frístundasvið Barnavernd Reykjavíkur um framkomna tilkynningu í samræmi við lagaskyldu þess efnis sbr. 17. gr., og 16. gr. barnaverndarlaga. Sú ákvörðun að koma tilkynningunni til Barnaverndar Reykjavíkur var tekin að vel ígrunduðu máli. Að frágenginni tilkynningu til Barnaverndar Reykjavíkur lauk afskiptum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar af málinu.

Tilkynningin frá skóla- og frístundasviði var skráð í málaskrá Barnaverndar Reykjavíkur sama dag og hún barst, eða 24. janúar. Samkvæmt 35. gr. barnaverndarlaga skal barnaverndarnefnd, ef hún fær ábendingu um að atferli manns sé stórlega ábótavant, sem starfa sinna vegna hefur samskipti við börn, hefja könnun máls eigi síðar en sjö dögum eftir að tilkynning berst ef nefndin telur ástæðu til.

Að höfðu samráði Barnaverndar Reykjavíkur við Barnaverndarstofu var ákveðið að hefja könnun máls. Henni lauk hinn 8. febrúar 2013 og var hlutaðeiganda tilkynnt það með bréfi.

Könnun Barnaverndar Reykjavíkur leiddi ekkert í ljós er studdi tilkynninguna. Því stóð ekkert í vegi fyrir því frá sjónarhóli Reykjavíkurborgar að hlutaðeigandi héldi áfram störfum.