Vilt þú sækja um styrk hjá borginni?

Reykjavík
Reykjavík frá sjó.

Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki úr borgarsjóði fyrir árið 2025. 

Styrkjunum er ætlað að styðja við fjölbreytt verkefni einstaklinga og frjálsra félagasamtaka sem stuðla að farsælli þróun borgarsamfélagsins, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi.

 Styrkir eru veittir til verkefna á eftirtöldum sviðum:

  • Félags- og velferðarmála
  • Íþrótta- og æskulýðsmála
  • Mannréttindamála
  • Menningarmála

Umsókn er rafræn í gegnum Mínar síður borgarinnar. Umsóknareyðublaðið er nú aðgengilegra, einfaldara og skýrara gagnvart umsækjendum. Umsóknarfrestur er frá 1. til 30. september 2024.

Sækja um styrk

Gert er ráð fyrir að úthlutun styrkja verði lokið í ársbyrjun 2025.

Þarftu frekari aðstoð eða upplýsingar? Þjónustuver borgarinnar er til staðar í netspjalli, í gegnum netfangið upplysingar@reykjavik.is og í síma 411 1111.