
Íbúafundur með borgarstjóra verður í kvöld, þriðjudaginn 21. nóvember á Kjarvalsstöðum kl. 19:30-21:00, þar sem nýtt hverfisskipulag Hlíða-, Háteigs- og Öskjuhlíðarhverfis verður á dagskrá.
Margt fróðlegt verður á fundinum, myndbönd, kynningar, streymi, umræður og kaffi á könnunni. Margrét M. Norðdahl íbúi í Hlíðunum verður fundarstjóri,
Dagskrá íbúafundar:
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
- Kolbrún Jarlsdóttir: Sýn íbúa
- Ævar Harðarson, arkitekt og deildarstjóri Hverfisskipulags: Samráð í Hlíðum
- Sigríður Magnúsdóttir arkitekt og ráðgjafi hverfisskipulags: Helstu tillögur
- Fyrirspurnir íbúa sem sendar hafa verið fyrir fundinn eða eru bornar upp í sal
- Streymi á facebook síðu Reykjavíkurborgar og YouTube síðu borgarinnar
Upplýsingar
Frétt um samþykkt í borgarráði
Sýning og hverfisganga
- Sýning á tillögum hófst í þjónustuverinu í Borgartúni 12-14, einnig voru settir upp standar með upplýsingum á Klambratúni og á Rauðarárstíg við Hverfisgötu. Sýningin sjálf hefst svo á Kjarvalsstöðum 21. nóvember. og stendur til 23. nóv.
- Hverfisganga með íbúum verður sunnudaginn 26. nóvember kl. 13. Lagt verður af stað frá Kjarvalsstöðum og þátttakendum er boðið upp á kakó við upphaf göngu.
Nokkrir áhugaverðir punktar úr hverfisskipulaginu
- Byggðin í Norðurmýri og sunnanverðu Rauðarárholti fær hverfisvernd.
- Með hverfisskipulagi Hlíða fylgja samþykktar teikningar að nýjum svölum fyrir hús í Rauðarárholti og Norðurmýri sem ekki hafa svalir í dag.
- Skilmálar hverfisskipulags segja til um hvar heimilt er að hækka þök og útbúa kvisti og hvar ekki.
- Hverfisskipulag gefur heimildir fyrir ýmiskonar smáhýsum og skýlum á lóð sem auðveldar íbúum að aðlaga húsnæði sitt að nútímaþörfum.
- Endurhönnun borgargatna í hverfunum getur breytt ásýnd hverfa, dregið úr umferðarhraða og aukið öryggi og lífsgæði íbúa. Aukið verður við trjágróður og lögð áhersla á hverfistorg og almenningsrými sem nýtast íbúum.
- Víða eru ekki taldir miklir möguleikar til breytinga á fjölbýlishúsum. Þó eru gefnar heimildir fyrir auka hæð og lyftu við fjölbýlishús meðfram Bogahlíð til að bæta aðgengi að íbúðum á efri hæðum.
- Í stað verkbækistöðvar sem er á milli Kjarvalsstaða og skeifunnar í norðausturhorninu, komi afgirtur garður þar sem lausaganga hunda verði leyfð. Þar er einnig lagt til að komið verið fyrir almenningssalernum.